HÖNN3LV07 - Lokaverkefni

lokaverkefni

Einingafjöldi: 7
Þrep: 3
Forkröfur: HÖNN2HA05
Lokaverkefni er raunverkefni unnið út frá áhugasviði hvers og eins. Viðfangsefni nemenda geta tengst ákvörðunum þeirra um val á framhaldsnámi eða innan atvinnulífsins. Lögð er áhersla á að nemendur vinni sjálfstætt að hönnunarverkefni í formi nýsköpunar á hlut, verki, vöru eða þjónustu m.a. í samstarfi við fyrirtæki, stofnanir og ráðgjafa úr atvinnulífinu. Nemendur skila vandaðri hugmyndavinnu, fylgja skipulögðu vinnuferli í formi hugmynda- og vinnumöppu auk skýrslugerðar (viðskiptaáætlunar). Áhersla er lögð á virka þátttöku nemenda. Nemendur þurfa að geta skilgreint markhóp fyrir vöru og/eða þjónustu, fjármagna verk sitt, markaðssetja, framleiða og selja. Lokamarkmiðið er að taka þátt í samkeppnum, sýningum og halda kynningar. Verkefnið er unnið í nánu samstarfi við kennara skólans

Þekkingarviðmið

  • að velja form og lit, efni og aðferð og rökstutt valið við hæfi
  • að vinna með nýsköpun á hlut, verki, vöru eða þjónustu
  • samspili markaðssetningar, hönnunar, framleiðslu og sölu
  • hvernig hönnun, framleiðsla og markaðssetning og sala helst í hendur
  • að geta raungert hugmynd frá fyrstu hugdettu að lokaafurð
  • gildi upplýsingaöflunar fyrir markaðs- og viðskiptaáætlanir

Leikniviðmið

  • taka sjálfstæðar ákvarðanir varðandi verkefnaval
  • leita til ráðgjafa og afla sér viðbótarþekkingar utan skólans
  • þróa og endurmeta hugmyndir eða framleiðslu á öllum stigum vinnuferlisins
  • hafa frumkvæði og kunnáttu til að velja „verkfæri“ og aðferðir í samræmi við verkefni
  • nýta sér fagleg og skapandi vinnubrögð
  • greina verkþætti og setja fram vinnulýsingu og kostnaðaráætlun
  • koma viðskiptahugmynd á framfæri og hefja sölu
  • taka þátt í kynningu, samkeppni og sýningu
  • geta fært rök fyrir gildi afurðar
  • setja fram markaðs- og viðskiptaáætlun
  • nýta sér upplýsinga- og samskiptatækni

Hæfnisviðmið

  • vinna sjálfstætt að hönnunarverkefni
  • stofna, fjármagna og reka eigið „fyrirtæki“
  • markaðssetja afurðina og hefja sölu
Nánari upplýsingar á námskrá.is