rafsegulsfræði
Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: EÐLI2GÁ05 og STÆR3HV05
Í áfanganum eru nemendur látnir vinna með hugtök og þekkingu úr rafsegulfræði. Samtímis því eru nemendur þjálfaðir í þeim vinnubrögðum sem notuð eru við nám í þessari grein. Nemendur vinna bæði sjálfstætt og saman í hópum og lögð er áhersla á sjálfstæði og ábyrgð nemandans á eigin námsframvindu.
Þekkingarviðmið
- því hvernig rafhleðsla hlutar á upptök sín í hleðslum öreindanna.
- kraftalögmáli Coulombs.
- sviðshugtakinu og rafsegulbylgjum.
- spennu og rafstöðuorku, tapi á orku í færslu rafmagns.
- helstu hugtökum sem notuð eru í rafsegulfræðinni og SI-einingum þeirra.
- lögmáli Ohms og reglum Kirchhoffs.
- rökrásum, hliðtengingumog raðtengingum.
- lögmáli Laplace.
- spani og spólum.
- verkun nokkurra tækja sem byggja á lögmálum rafsegulfræðinnar.
Leikniviðmið
- vinna með tölur og vigra í eðlisfræði og í vísindalegum vinnubrögðum.
- beita lögmálum og jöfnum við að leysa verkefni af ýmsu tagi.
- leiða út með rökrænum hætti jöfnu fyrir sambandi stærða frá gefnum forsendum.
- vinna með fjölmæla og ýmsa rafhluti við að framkvæma verklegar æfingar og vinna úr mæliniðurstöðum þeirra, m.a. með tölvuforritum.
- beita hægrihandarreglunni.
- setja fram eðlisfræðilegt umfjöllunarefni á skýran og markvissan hátt í ræðu og riti.
Hæfnisviðmið
- sýna sjálfstæði í vinnubrögðum.
- nota námsefni og gögn á markvissan hátt.
- yfirfæra þekkingu úr öðrum greinum til að auðvelda námið.
- meta hvort niðurstöður útreikninga og mælinga séu raunhæfar.
- tengja eðlisfræðina við daglegt líf og umhverfi og gera sér grein fyrir notagildi hennar.
Nánari upplýsingar á námskrá.is