lokaáfangi
Einingafjöldi: 10
Þrep: 3
Forkröfur: Allir áfangar á fatahönnunarkjörsviði.
Nemendur vinna sjálfstætt að hönnunarverkefni í formi þemavinnu. Nemendur skila hugmyndavinnu, fylgja skipulögðu vinnuferli í formi dagbókar, vinnuskýrslu þar sem tilgreindar eru forsendur fyrir hugmyndum, framkvæmd og framvindu verksins auk undirbúnings-, tilrauna- eða rannsóknarvinnu. Nemendur skila vandaðri ferilmöppu .
Þekkingarviðmið
- hvað fólgið sé í sjálfstæðum, faglegum og skapandi vinnubrögðum varðandi framkvæmd verksins á öllu vinnuferlinu
- gerð vinnuáætlana, greiningu og endurmati verkþátta
- mikilvægi þess að rýna í eigið verk og annarra á uppbyggilegan hátt
- mikilvægi þess að geta komið vinnu sinni á framfæri á fjölbreyttan máta
Leikniviðmið
- taka sjálfstæða ákvörðun varðandi verkefnaval
- sýna sjálfstæð, fagleg og skapandi vinnubrögðum varðandi framkvæmd verksins
- skilgreina forsendur fyrir hugmyndum, framkvæmd og framvindu verksins
- setja fram vinnuáætlun og greina verkþætti
- endurmeta hugmyndir sínar og framkvæmd verksins í öllu vinnuferlinu
- rýna í eigið verk og rökstyðja niðurstöður bæði munnlega og skriflega
- koma vinnu sinni á framfæri á fjölbreyttan máta
Hæfnisviðmið
- tileinka sér sjálfstæð, fagleg og skapandi vinnubrögð
- skilgreina forsendur og greina og endurmeta verkþætti
- koma vinnu sinni á framfæri á fjöbreyttan máta
- úbúa ferilmöppu sem nýst getur sem umsókn í nám og störf
Nánari upplýsingar á námskrá.is