Dansleikhús
Einingafjöldi: 2
Þrep: 2
Í áfanganum er lögð áhersla á líkamann sem tjáningartæki og að gera nemendur meðvitaða um líkama sinn og hreyfingar. Nemendur kanna margar ólíkar leiðir í dansi og hreyfingum til að tjá og túlka sögur, persónur, tilfinningar o.s.frv. Áfanga lýkur með dansleikhússýningu.
Þekkingarviðmið
- því hvaða túlkunarmöguleikum dansinn býr yfir.
- því hvernig hægt er að nota líkamann sem tjáningartæki.
Leikniviðmið
- nota líkamann til að tjá og túlka persónur, tilfinningar og sögur.
- sækja innblástur úr daglegu lífi til að búa til lítil og stór dansverk.
- hugsa á óhlutstæðan hátt um mismunandi leiðir til túlkunar með líkamanum.
Hæfnisviðmið
- þjálfa samhæfingu og líkamlega færni.
- auka þor og sköpunarkraft í dansforminu.
- nota líkama sinn til að túlka og tjá viðfangsefni.
- öðlast betri líkamsvitund og skilning á möguleikum líkama síns.
- bæta eigin rýmisvitund.
- auka líkamsfærni sína á skapandi hátt í spuna.
- finna innblástur í daglegu lífi fyrir danshreyfingar og stutt dansverk.
Nánari upplýsingar á námskrá.is