Tölfræðipróf
Einingafjöldi: 5
Þrep: 4
Forkröfur: STÆR3TL05
Í áfanganum er nánar farið í normaldreifingu og aðrar dreifingar s.s. kí-kvaðratdreifingu og unnið með tilgátuprófanir. Nemendur vinna eigin rannsókn þar sem þeir hanna spurningalista, leggja hann fyrir valið úrtak og vinna tölfræðilega úr niðurstöðum.
Þekkingarviðmið
- algengustu dreifingum í tölfræði.
- því hvernig nota má tölfræðipróf til að ákveða hvort hafna eigi eða samþykkja tilgátu.
- því hvernig á að hanna, leggja fyrir og vinna úr tölfræðilegri rannsókn.
Leikniviðmið
- setja tölulegar upplýsingar fram á skýran og skilmerkilegan hátt.
- framkvæma tilgátupróf.
- beita hjálpartækjum og forritum við lausn verkefna.
Hæfnisviðmið
- draga tölfræðilegar ályktanir út frá tölulegum gögnum.
- greina og hagnýta stærðfræðilegar upplýsingar í rituðu máli, myndrænt og í töflum.
- kynna og útskýra rannsóknarniðurstöður fyrir öðrum á fjölbreyttan hátt.
- geta skráð lausnir sínar skýrt og á gagnrýninn hátt, skipst á skoðunum við aðra um þær og útskýrt á viðeigandi hátt.
- átta sig á tengslum ólíkra aðferða við framsetningu hugmynda og velja aðferð við hæfi.
- hagnýtt sér stærðfræðilega þekkingu sína til ákvarðanatöku í sérhæfðum verkefnum.
Nánari upplýsingar á námskrá.is