Hreyfimynda-og myndbandatökur
Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Í áfanganum læra nemendur helstu aðferðir við framleiðslu tví- og þrívíðra hreyfimynda og myndbanda. Nemendur kynnast fjölbreyttum vinnsluaðferðum við framleiðslu og kynningu verkefna s.s. upptökum, klippingu, myndvinnslu og notkun fjölbreyttra forrita.
Nemendur vinna verkefni þar sem lögð er mikil áhersla á góða samvinnu og/eða hópvinnu og einnig einstaklingsvinnu. Skoðuð eru verk fagmanna og listamanna sem vinna myndbönd og hreyfimyndir með þeim aðferðum sem kenndar eru í áfanganum.
Þekkingarviðmið
- því hvernig tví- og þrívíðar hreyfimyndir og myndbönd eru unnin.
- því hvernig vinna má með fjölbreyttum aðferðum í klippiforriti, myndvinnsluforriti og forriti til hreyfimyndagerðar.
- því hvernig vinna má fjölbreyttar upptökur með upptökuvél.
- vinnu fagfólks við gerð hreyfimynda og myndbanda.
- hinum ýmsu menntastofnunum á sviði kvikmyndagerðar.
Leikniviðmið
- búa til hreyfimyndir og myndbönd.
- nota klippiforrit og skal geta nýtt sér þau í áframhaldandi námi.
- taka þátt í skipulagðri hópvinnu þar sem nemendur skipta með sér verkum við gerð myndbanda og hreyfimynda.
- ræða opinskátt um þær hugmyndir sem hann túlkar í myndböndum sínum.
- taka þátt í uppbyggilegum umræðum um hugmyndir samnemenda.
Hæfnisviðmið
- búa til myndbönd sem eru áhugaverð og persónuleg.
- fjalla um hugmyndalegan og verklegan bakgrunn verka sinna.
- taka þátt í uppbyggilegri og frjórri samræðu um verk sín og annarra.
Nánari upplýsingar á námskrá.is