þátttaka í uppsetningu leiksýningar
Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Nemendur kynnast margvíslegum verkefnum sem tengjast uppsetningu leiksýningar. Nemendur bera ábyrgð á hugmynd, ferli og framkvæmd sýningar auk alls þess sem til fellur í ferlinu frá fyrstu hugmynd til endurmats í lok tímabils. Sérstök áhersla er lögð á sjálfstæða og skapandi hugsun, framkvæmdagleði, skipulagshæfileika, leiðtogahæfni og hugmyndaauðgi. Áfanganum lýkur með lokasýningu sem sýnd er í nokkur skipti. Sérstök áhersla er lögð á gildi forvarna í víðu samhengi s.s. gegn vímuefnum og félagslegri einangrun.
Þekkingarviðmið
- ýmsum störfum sem fram fara innan leikhúss.
- mismunandi hlutverki hverrar leikhúsdeildar.
- verkferli deildar sem nemandi velur sér, allt frá grunnhugmynd að fullunnu verki og því hvernig öll verkin eru hluti af leiksýningu.
- því hvað þarf til þess að gera leiksýningu að raunveruleika, allt frá hugmyndavinnu, í gegnum framkvæmd ýmissa verkefna, til fullgerðar leiksýningar.
- því hvernig hann skipuleggur vinnu sína í skapandi ferli þar sem margir koma að ákvörðunartöku.
- því hvernig leiða á hópa í gegnum sameiginlegt ferli.
- þeim fjölmörgu þáttum sem huga þarf að við uppsetningu leikverks.
- gildi góðrar skipulagningar á eigin tíma og annarra.
Leikniviðmið
- finna lausnir á þeim ólíku vandamálum sem kunna að koma upp í öllu ferlinu.
- vinna náið með öðrum nemendum og leikstjóra að því að setja upp leiksýningu.
- framkvæma og axla ábyrgð á þeim verkefnum sem fyrir eru lögð.
- tjá hugmyndir sínar fyrir framan hóp og framkvæma þær með hópnum.
- leiða hóp í skapandi hugmyndavinnu.
Hæfnisviðmið
- vinna sjálfstætt með öðrum nemendum að því að setja upp leiksýningu.
- vera hagsýnn og virkur í öflun efnis og annarra.
- vera virkur í skapandi hugmyndavinnu.
- vinna með öðrum nemendum á jákvæðan, skapandi og gefandi hátt.
- leiða samnemendur af festu og stuðla að því að tímabilið verði gefandi fyrir alla.
Nánari upplýsingar á námskrá.is