LEIK1LH05 - Leikhús

þátttaka í uppsetningu leiksýningar

Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Nemendur kynnast margvíslegum verkefnum sem tengjast uppsetningu leiksýningar. Í upphafi áfangans velja nemendur sér deild til að vinna í en allar deildir hafa það að markmiði að setja upp leiksýningu. Deildirnar geta verið eftirfarandi: Sviðsmynd og leikmunir, búningar, förðun og leikhúsliðar. Nemendur kynnast þeim verkefnum sem þarf að inna af hendi til að gera leiksýningu að veruleika. Áfanganum lýkur með leiksýningu sem sýnd er í nokkur skipti. Sérstök áhersla er lögð á gildi forvarna í víðu samhengi s.s. gegn vímuefnum og félagslegri einangrun.

Þekkingarviðmið

  • ýmsum störfum sem fara fram innan leikhúss.
  • mismunandi hlutverki hverrar leikhúsdeildar.
  • verkferli deildar sem nemandi velur sér, allt frá grunnhugmynd að fullunnu verki og því hvernig öll verkin eru hluti af leiksýningu.
  • því hvað þarf til þess að gera leiksýningu að raunveruleika, allt frá hugmyndavinnu, í gegnum framkvæmd ýmissa verkefna, til fullgerðar leiksýningar.

Leikniviðmið

  • finna lausnir sem henta deild viðkomandi nemenda á vandamálum sem kunna að koma upp.
  • vinna náið með öðrum nemendum að því að setja upp leiksýningu.
  • axla ábyrgð á þeim verkefnum sem lögð eru fyrir hann.
  • tjá hugmyndir sínar fyrir framan hóp fólks og framkvæma þær með hópnum.

Hæfnisviðmið

  • sýna sjálfstæð vinnubrögð í uppsetningu leiksýningar í samstarfi við aðra nemendur.
  • vera virkur í öflun efnis og áhalda fyrir sína deild.
  • vera virkur í hugmyndavinnu deildar.
  • tileinka sér gott vinnusiðferði í hóp svo hægt sé að vinna að öllum verkefnum sem fyrir liggja á jákvæðan og skapandi hátt.
  • geta unnið með öðrum deildum, stjórn leikfélagsins og leikstjóra á jákvæðan, skapandi og gefandi hátt.
Nánari upplýsingar á námskrá.is