fagorðaforði
Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: ENSK3HR05
Meginmarkmið áfangans er að auka og auðga orðaforða, efla skilning á grundvallarhugtökum ýmissa fræðasviða, þjálfa nemendur í lestri faglegra texta og að nýta sér sérhæfðan orðaforða, t.d. við gerð skýrslna, útdrátta og kynninga. Lögð er áhersla á að nemendur vinni sjálfstætt með fjölbreytt efni og hafi val um margvísleg verkefni, t.d. innan tiltekinna fræðigreina.
Þekkingarviðmið
- orðaforða sem gerir honum kleift að tileinka sér með góðu móti lesefni í áframhaldandi námi eða starfi á ýmsum sviðum.
- hefðum, sem eiga við, um talað og ritað mál á viðeigandi fræðasviði og í þeim löndum þar sem enska er töluð.
- orðaforða, uppruna hans, málstofnum, orðmyndun og öðru sem gerir nemanda kleift að tileinka sér lesefni í áframhaldandi námi og starfi tengdu viðeigandi fræðasviði.
Leikniviðmið
- skilja sérhæfða texta á ensku.
- lesa sér til gagns fræðilega og krefjandi texta og vinna með þá, t.d. finna kjarna máls, rökfærslu og draga ályktanir.
- beita ritmálinu í mismunandi tilgangi með stílbrigðum og málsniði sem við á, s.s. við gerð skýrslna, útdrátta, heimildaritgerða og kynninga.
- nýta sér fyrirlestra, umræður og rökræður um fræðileg efni á ensku og tjá sig af öryggi um margvísleg málefni sem tengjast tilteknum fræðasviðum.
Hæfnisviðmið
- nýta sér fyrirlestra, umræður og rökræður um fræðileg málefni.
- nýta sér fræðitexta og meta heimildir á gagnrýninn hátt.
- geta flutt vel uppbyggða frásögn, kynningu og/eða greinargerð, dregið fram aðalatriði og rökstutt mál sitt nokkuð nákvæmlega með dæmum og brugðist við fyrirspurnum.
- beita rithefðum sem við eiga í textasmíð.
- skrifa texta með röksemdafærslu þar sem fram koma rök með og á móti og þau vegin og metin.
- geta lýst skýrt og greinilega flóknum hlutum eða ferlum á tilteknu sviði og nýtt faglegan orðaforða á lipran og skýran máta í ritun og tali.
- vinna úr ýmsum upplýsingaveitum og fella saman í eina heild samkvæmt þeim venjum sem gilda um heimildavinnu.
Nánari upplýsingar á námskrá.is