HÖNS2AH05 - Almenn hönnunarsaga

almenn, hönnunarsaga

Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: engar
Í áfanganum læra nemendur um verkmenningu og tækni frá tímum Egypta fram til loka 19. aldar. Fjallað er um byggingar, húsmuni, fatnað, textíl, verkfæri og áhöld frá tímabilinu. Skoðað er hvaða áhrif stjórnarfar, landslag, veðurfar, tækni og verkkunnátta á hverjum stað og tíma, hafði á þróun manngerðs umhverfis. Evrópa verður í fyrirrúmi en einnig verður litið til Afríku, Asíu og Ameríku og skoðaðir þjóðbúningar, byggingar, handverk o.fl. ýmissa landa. Lögð er áhersla á íslenskt handverk, byggingar, húsmuni, fatnað o.fl. og gerður samanburður á stöðu Íslands við aðra menningarheima og áhrifavalda. Vettvangsferðir á minjasöfn og sýningar, fleiri staði sem tengjast minjum og handverki.

Þekkingarviðmið

  • hinum mismunandi menningar- og stílbrigðum frá tímabilinu
  • hvernig verkmenningu, tækni og handverki er háttað á tímabilinu og hvernig aðstæður og þarfir hafa áhrifa framfarir og þróun manngerðs umhverfis
  • hvaða áhrif samgöngu- og iðnbyltingin hafði á þróun fjöldaframleiðslu á 19. öld
  • hvaða áhrif iðnbyltingin hafði á þróun handverks og heimilisiðnaðar yfir í listiðnað
  • hvaða breytingar urðu í kjölfar iðnbyltingarinnar bæði á daglegt líf og heimsmynd fólks
  • mismunandi menningu og þjóðareinkennum ýmissa þjóða
  • hvaða stefnur hafa verið áhrifavaldar hérlendis á tímabilinu við gerð bygginga, húsgagna, fatnaðar, skrautmuna o.fl.
  • minja- og safnaumhverfi handverks og hönnunar

Leikniviðmið

  • kunna skil á hinum mismunandi menningartímabilum
  • þekkja verkmenningu, tækni og handverk frá tímabilinu
  • þekkja vestræn stílbrigði fram til loka 19. aldar
  • skilja hvaða aðstæður og þarfir hafa áhrif á tæknikunnáttu og framfarir
  • skilja hvernig gróður og veðurfar hefur áhrif á gerð bygginga, fatnaðar og annarra hluta
  • skilja hvaða áhrif aðgengi að mismunandi hráefni hefur á manngert umhverfi
  • skilja orsök, áhrif og afleiðingar fjöldaframleiðslu á listiðnað og handverk á 19. og 20. öld
  • þekkja áhrif samgöngu- og iðnbyltingarinnar á þróun fjöldaframleiðslu á 19. öld og hvernig þær breytingar höfðu áhrif á daglegt líf og heimsmynd fólks
  • þekkja til Heimssýninganna á 19. öld, þ.e. í London 1851, París 1889 og Chicago 1893
  • þekkja menningu og þjóðareinkenni ýmissa þjóð s.s. búninga, handverk, byggingar o.fl.
  • kunna skil á þeim stefnum sem eru áhrifavaldar hér á landi á tímabilinu við gerð bygginga, fatnaðar, listmuna og annarra hluta ætlaðra til almennra nota
  • þekkja minja- og safnaumhverfi handverks og hönnunar

Hæfnisviðmið

  • hafa innsýn í mismunandi menningartímabil og vestræn stílbrigði fram til loka 19. aldar
  • meta aðstæður og þarfir sem hafa áhrif á tæknikunnáttu og framfarir
  • meta áhrif gróðurs, veðurfars og aðgengis að hráefni á manngert umhverfi
  • meta áhrif samgöngu- og iðnbyltingarinnar á þróun í fjöldaframleiðslu og í handverki
  • setja hönnun í samhengi við þróun daglegs lífs og breytta heimsmynd fólks
  • hafa innsýn í menningu og þjóðareinkenni ýmissa þjóða
  • kunna skil á minja- og safnaumhverfi handverks og hönnunar
Nánari upplýsingar á námskrá.is