samsköpunaraðferðir
Einingafjöldi: 10
Þrep: 3
Forkröfur: LEIK3SV05 OG LEIK3SS05
Samsköpunaraðferðir í leiklist eru skoðaðar ítarlega og hugmyndafræði aðferðanna eru kynntar. Nemendur kynnast hugtakinu „opnun“ og þurfa að gera mörg verkefni þar sem sérstök áhersla er lögð á sjálfstæð vinnubrögð og samvinnu. Áhersla er lögð á að nemendahópurinn komist að sameiginlegri niðurstöðu um þau viðfangsefni sem lögð eru til grundvallar hinu skapandi starfi. Einnig er lögð áhersla sameiginlegt sköpunarferli og framlag hvers og eins í ferlinu. Áfanganum lýkur með sýningu.
Þekkingarviðmið
- helstu samsköpunaraðferðum í leikhúsi
- fjölbreyttum leiðum til frumsköpunar í leikhúsi
- hvernig samsköpunaraðferðir virka
- mikilvægi þess að vinna uppbyggilega og faglega með öðrum
- leiðum til þess að búa til sviðsverk sem speglar hugmyndir og sýn nemenda á samfélagið
Leikniviðmið
- vinna í hóp að sameiginlegu leiklistarverkefni
- tjá sig á skýran og gagnrýninn hátt um gefið viðfangsefni í leiklist
- skipuleggja samsköpunarverefni frá grunni
- greina hvenær leikhús og atriði eru dýnamísk og full og hvernig þau spegla samfélag sitt á ólíkan hátt
Hæfnisviðmið
- nota helstu samsköpunaraðferðir við mótun á sviðlistaverki
- tjá skoðanir sínar á sviðslistum á ábyrgan, gagnrýninn og skýran hátt
- greina hvað er hlaðið merkingu í leikhúsi og samfélaginu og hvað ekki
- skapa sjálfstætt, dýnamískt, áhrifaríkt og vel ígrundað sviðslistaverk
- meta eigið vinnuframlag
- sýna ríkan skilning á hvernig leikhúsformið getur verið dýnamískt og listrænt
- nýta sér leikhúsformið til að spegla samfélag sitt og setja það í nýtt samhengi sem metið er með skriflegum verkefnum, gólfvinnu, lokaverkefni og umræðum
Nánari upplýsingar á námskrá.is