Ganga
Einingafjöldi: 3
Þrep: 2
Forkröfur: Engar
Áfanginn er að öllu leyti verklegur og markmið hans er almenn hreyfing. Í þessum áfanga fer hreyfingin fram í formi gönguferðar og útivistar. Lagt er upp með að nemandinn upplifi líkamlega og félagslega ánægju í gegnum þjálfun og útiveru.
Þekkingarviðmið
- hversu mikilvægt er að vera vel útbúin til útivistar
- helstu gönguleiðum á höfuðborgarsvæðinu
Leikniviðmið
- ganga sér til heilsubótar
- nýta sér útivistarsvæði í nágrenninu til heilsubótar
- notkun staðsetningartækja og korta
- bæta félagsfærni
Hæfnisviðmið
- átta sig á mikilvægi hreyfingar fyrir andlega og líkamlega líðan einstaklingsins
- vinna með öðrum og vera hluti af hópi
Nánari upplýsingar á námskrá.is