frönsk menning
Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: FRAN2KV05
Áhersla er á fræðslu um afmarkaða þætti franskrar menningar. Hver nemandi vinnur með menningartengt þema á eigin áhugasviði sem valið er í samráði við kennara og vinnur sérstakt verkefni út frá því. Þessi sérverkefni nemenda geta verið af mismunandi toga og bæði munnleg og skrifleg. Nemendur sýna fram á sjálfstæði og frumkvæði við vinnslu verkefna áfangans. Hver nemandi dýpkar þekkingu sína á ákveðnum þætti franskrar menningar og deilir þeirri þekkingu með samnemendum sínum á einhvern hátt.
Þekkingarviðmið
- fjölþættum orðaforða í samræmi við hæfni- og leikniviðmið áfangans
- helstu grunnatriðum málkerfisins
- fjölbreyttum þáttum í menningu og þjóðfélagi frönskumælandi svæða
Leikniviðmið
- greina talað mál um efni af fjölbreyttari toga en áður
- skilja ýmiss konar lengri samfellda texta í tengslum við þema áfangans
- taka þátt í samræðum um ákveðin undirbúin og óundirbúin efni og beita málfari við hæfi af meira öryggi en áður
- skrifa lengri samfellda texta m.a. um menningartengt efni
- tjá sig á skýran hátt um efni sem hann hefur undirbúið og beita helstu reglum um málnotkun á viðeigandi hátt
- nota sjálfstæð og viðeigandi vinnubrögð í tungumálanámi
Hæfnisviðmið
- greina megininntak talað máls/frásagna af ýmsum toga ef efnið er að mestu leyti kunnuglegt
- tileinka sér efni lengri og sérhæfðari texta af ýmsum toga, einkum menningartengdra texta
- taka þátt í samræðum/skoðanaskiptum við fjölbreyttar aðstæður á sjálfstæðan hátt og af meira öryggi en áður
- tjá sig um efni áfangans á skýran og sjálfstæðan hátt bæði skriflega og munnlega
Nánari upplýsingar á námskrá.is