TRÉS1GR05 - Grunnur

grunnur

Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Forkröfur: Engar.
Í áfanganum eru kennd grunnatriði trésmíða með áherslu á þekkingu og færni í notkun handverkfæra og rafmagnshandverkfæra, trésamsetningum, límingum, pússningu og yfirborðsmeðferðum. Nemendur kynnast notkun algengra tegunda viðarlíms og yfirborðsefna og tekið er fyrir val og umhirða á verkfærum. Í áfanganum eru tvö smíðaverkefni unnin.

Þekkingarviðmið

  • umgengni og notkun á rafmagnshandverkfærum og öðrum handverkfærum
  • helstu öryggisþáttum
  • vinnuaðstöðu og vinnumhverfi
  • meðferð, notkunarsvið og virkni einstakra hand- og rafmagnsverkfæra
  • öryggisregluum einstakra hand- og rafmagnshandverkfæra
  • meðferð og notkun einstakra límtegunda
  • grunnatriðum í yfirborðsmeðferð smíðaviðar og plötuefnis
  • öryggisreglum og öryggisráðstöfunum við yfirborðsmeðferð svo sem lakks og annarra efna

Leikniviðmið

  • nota mismunandi tegundir verkfæra, véla og efna
  • nota algengustu hand- og rafmagnshandverkfæri
  • nota áhöld til mælinga og uppmerkinga
  • bera yfirborðsefni á tré með mismunandi hætti

Hæfnisviðmið

  • smíða hluti eftir eigin vali og getu út frá vinnuteikningum og vinnulýsingum
Nánari upplýsingar á námskrá.is