líkamsrækt
Einingafjöldi: 3
Þrep: 2
Forkröfur: ÍÞRÓ1HR03
Áfanginn er að öllu leyti verklegur og markmið hans er almenn hreyfing. Í þessum áfanga fer hreyfingin fram í formi þrek- og þolþjálfunar með fjölbreyttum þjálfunaraðferðum. Lagt er upp með að nemandinn upplifi líkamlega og félagslega ánægju í gegnum þjálfunina.
Þekkingarviðmið
- starfsemi líkamans
- áhrifum líkamsræktar á líkama og sál
- ýmsum aðferðum við líkamsþjálfun
Leikniviðmið
- auka úthald sitt, styrk og liðleika með fjölbreyttum aðferðum sér til heilsubótar og ánægju
- beita félagsfærni
Hæfnisviðmið
- átta sig á mikilvægi hreyfingar fyrir andlega og líkamlega líðan einstaklingsins
- vinna með öðrum og vera hluti af hópi
Nánari upplýsingar á námskrá.is