MÁLV3AO05 - Akríl-og olíumálun

akríl- og olíumálun

Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: MÁLV2GR05
Áhersla verður lögð á að kenna og þjálfa nemendur í að mála málverk mð akrýllitum, blandaðri tækni og olíulitum með því að vinna markvisst ferli frá frumskissu , tilraunum með liti, form og myndbyggingu og til lokaniðurstöðu. Nemendur læra að strekkja striga á blindramma. Haldið áfram að þróa vatnslitamálun sem skissutæki fyrir málverk og vinna málverk með blandaðri tækni þar sem m.a. verður unnið með því að teikna og mála samhliða í sömu mynd. Nemendur vinna að mestu eftir eigin hugmyndum. Áhersla er lögð á að nemendur hengi upp verk sín og skoði þau í samhengi og þjálfist í að ræða um þau. Nemendur kynnast verkum íslenskra samtímalistamanna bæði í tímum og með því að fara á sýningar og einnig völdum verkum erlendra málara sem tengjast efni áfangans

Þekkingarviðmið

  • hvernig nota á akrýlliti og olíuliti við gerð málverka
  • hvernig blanda má teikningu og ýmsum efnum í málverk
  • hvernig valdir myndlistarmenn vinna málverk sín

Leikniviðmið

  • mála tvívíð verk með fjölbreyttri tækni og efni

Hæfnisviðmið

  • mála myndverk með mismunandi litum og tækni, frá frumskissu til lokamálverks og ganga frá því í blindramma
Nánari upplýsingar á námskrá.is