yndislestur
Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: ÞÝSK2BM05
Í þessum áfanga er lögð áhersla á lestur texta af ýmsum toga með það að markmiði að nemendur kynnist sögu, bókmenntum og menningu Þýskalands ásamt því að byggja upp orðaforða og efla lesskilning. Áhersla er lögð á lestur lengri bókmenntaverka, þemavinnu, munnlegar kynningar og ýmis konar hlustunar-, ritunar- og talæfingar til að styrkja og bæta við þann grunn sem þegar hefur verið lagður.
Þekkingarviðmið
- mismunandi textagerðum
- menningu og samfélagi þýskumælandi landa í gegnum skáldsögur, ljóð og sönglög
- fjölþættum orðaforða í samræmi við hæfni- og leikniviðmið áfangans
- flóknari þáttum málkerfisins
Leikniviðmið
- lesa ólíkar textagerðir
- vinna sjálfstætt úr lengri textum
- skilja skýrt talað mál og ná megininntaki í lengri frásögn og ljóðum
- skrifa vandað og rétt mál, tjá eigin skoðanir og fyrirætlanir
- nota upplýsingatækni og hjálpargögn við ritun texta
- tjá sig skýrt um málefni sem hann hefur kynnt sér
- beita framburði og málnotkun á sem réttastan hátt
- nota sjálfstæð og viðeigandi vinnubrögð í tungumálanámi
Hæfnisviðmið
- fjalla munnlega og skriflega um efni sem hann hefur kynnt sér
- tjá sig á þýsku við ýmsar aðstæður í almennum samskiptum
- tileinka sér mismunandi texta
- skrifa mismunandi tegundir texta
- fjalla um ljóðagerð og túlka ljóð með eigin orðum
- vinna lokaverkefni um skáldsögu og/eða ljóð
- meta eigið vinnuframlag og annarra
Nánari upplýsingar á námskrá.is