BÓKF2TB05 - Tölvubókhald

bókhald, tölvur

Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: BÓKF1IB05
Nú er tölvutæknin notuð til þess að færa bókhald eftir fylgiskjölum. Áhersla er lögð á að nemendur öðlist skilning á hvernig fjárhagsbókhald sækir upplýsingar í birgðabókhald, viðskiptamannabókhald, sölubókhald og launabókhald. Kynntir eru möguleikar á ítarlegri skýrslugerð ásamt túlkun og greiningu upplýsinga. Nemendum er kynnt mikilvægi upplýsingakerfa fyrir stjórnendur í nútíma viðskiptaumhverfi þar sem nákvæmar upplýsingar nýtast þeim til skilvirkrar ákvarðanatöku.

Þekkingarviðmið

  • röðun og varðveislu fylgiskjala
  • uppsetningu og skipulagi bókhaldslykla

Leikniviðmið

  • færa bókhald eftir fylgiskjölum
  • vinna með mismunandi færslur
  • gera upp fyrir tiltekið reikningstímabil

Hæfnisviðmið

  • geta útbúið launaseðla og skilaskýrslur
  • geta nýtt upplýsingakerfi til markvissrar upplýsingaöflunar
  • geta greint og túlkað upplýsingar
Nánari upplýsingar á námskrá.is