FJÁR2FE05 - Fjármál einstaklinga

einstaklinga, fjármál

Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: FJÁR2FL05 og STÆR2FJ05
Fjallað er um fjármál einstaklinga og helstu hugtök á sviði fjármála almennt. Áhersla er lögð á þjálfun í útreikningum þar sem telja má að kunnáttan hafi almennt hagnýtt gildi. Fjallað er um markað fyrir helstu tegundir verðbréfa og meginatrið sem varða mat á fjárfestingavalkostum, núvirðisútreikninga og útreikninga á verðgildi skuldabréfa.

Þekkingarviðmið

  • helstu vaxtahugtökum
  • helstu sparnaðarleiðum einstaklinga
  • útreikningi á ávöxtun og greint á milli nafnávöxtunar og raunávöxtunar
  • núvirði og framtíðarvirði

Leikniviðmið

  • þekkja helstu tegundir skuldabréfa og geta reiknað út greiðslur tengdar þeim
  • þekkja til helstu aðferða við verðtryggingu og geta reiknað út greiðslur af verðtryggðum skuldabréfum
  • geta reiknað út greiðslur, núvirði og framtíðarvirði greiðsluraðar
  • geta reiknað út innri vexti greiðsluraðar

Hæfnisviðmið

  • geta reiknað út hagkvæmustu fjárfestingavalkosti/tilboð með hjálp núvirðisreikninga
  • geta reiknað út kaupverð, gengi, afföll og yfirverð einföldustu gerða skuldabréfa
Nánari upplýsingar á námskrá.is