rannsóknir, tölfræði
Einingafjöldi: 5
Þrep: 4
Forkröfur: STÆR3TL05
Farið er nánar í normaldreifinguna og einnig aðrar dreifingar s.s. kí-kvaðratdreifingu, og unnið með tilgátuprófanir. Nemendur vinna eigin rannsókn þar sem þeir hanna spurningalista, leggja hann fyrir valið úrtak og vinna tölfræðilega úr niðurstöðunum.
Þekkingarviðmið
- algengustu dreifingum í tölfræði
- hvernig nota má tölfræðipróf til að ákveða hvort hafna eigi eða samþykkja tilgátu
- hvernig á að hanna, leggja fyrir og vinna úr tölfræðilegri rannsókn
Leikniviðmið
- setja tölulegar upplýsingar fram á skýran og skilmerkilegan hátt
- framkvæma tilgátupróf
- beita hjálpartækjum og forritum við lausn verkefna
Hæfnisviðmið
- draga tölfræðilegar ályktanir út frá tölulegum gögnum
- greina og hagnýta stærðfræðilegar upplýsingar í rituðu máli, myndrænt og í töflum
- kynna og útskýra rannsóknarniðurstöður fyrir öðrum á fjölbreyttan hátt
- geta skráð lausnir sínar skýrt og á gagnrýninn hátt, skipst á skoðunum við aðra um þær og útskýrt á viðeigandi hátt
- átta sig á tengslum ólíkra aðferða við framsetningu hugmynda og velja aðferð við hæfi
- hagnýtt sér stærðfræðilega þekkingu sína til ákvarðanatöku í sérhæfðum verkefnum
Nánari upplýsingar á námskrá.is