Nýnemaferð Fjölbrautaskólans í Garðabæ var farin fimmtudaginn 9. september 2010. Farið var í Laugardal þar sem ESKIMO.is stjórnaði ýmsum leikjum og þrautum. Í lok ferðarinnar, sem tókst í alla stað mjög vel, fengu allir kók og pylsur.
Á hverjum morgni í fyrstu frímínútum kl. 9.10 - 9.20 gefst nemendum skólans kostur á að kaupa sér hafragraut. Starfsmenn skólans skiptast á að ausa í diska nemenda. Vikuna 6.-10. september skammta stærðfræðikennarar grautinn af mikilli færni.
Skrifstofa skólans er opin
frá kl. 8.00 - 15.00
en svarað er í síma til kl. 16.00
Smellið á myndina til að stækka