Fréttir

IMBRA hefst á morgun

Imbran hefst á morgun í FG og þá gerbreytir skólinn um svip. Mikið er um að vera og á fimmtudaginn brestur svo á með árshatíð, ýmsar bombur verða þar, meðal annars Herra Hnetusmjör og Fm95Blö. Þá er leikritið Heathers einnig komið í gang og miðasala hafin á Tix.is. Hér er slóðin; https://tix.is/is/event/14995/heathers/ Góða og fallega skemmtun!
Lesa meira

HEATHERS - frumsýning á fimmtudag

Nú er allt að smella saman fyrir frumsýningu á söngleiknum Heathers, hjá leikfélagi FG, Verðandi. Frumsýning verður á fimmtudaginn, en sú sýning er hugsuð fyrir aðstandendur, en í dag miðvikudag, verður svokölluð ,,generalprufa.“ Tíðindamaður FG.is var viðstaddur á ,,rennsli“ á þriðjudagskvöldið og varð vitni að skemmtilegri og kröftugri sýningu, þar sem andi unglingsáranna, já, menntaskólaáranna, sveif svo sannarlega yfir vötnum, með öllu sem þeim pakka fylgir. Ekki verður ,,skemmt“ meira, en kaupið miða þegar Heathers fer í almennar sýningar. Mikið stuð! Hér má lesa um söguþráðinn í stykkinu.
Lesa meira

FG í undanúrslit í FRIS (rafíþróttum)

Það gekk vel hjá FG að spila rafsport þegar lið skólans mætti MÁ, Menntaskólanum á Ásbrú, frá Suðurnesjum, þann 8.mars síðastliðinn. Þá fóru fram átta liða úrslit í FRIS, sem er keppni framhaldsskólanna í rafíþróttum eða ,,Framhaldsskólaleikarnir í rafíþróttum.“ Keppt var í þremur leikjum; CS GO, Valorant og Rocket League. Fyrstu tveir leikirnir eru svokallaðu ,,fyrstu-persónu-skotleikir“ (FPS), en hinn þriðji er bílafótbolti. FG spilaði vel og stóð uppi sem sigurvegari, vann bæði CS og Valorant, en tapaði í bílaboltanum. Því vann liðið heildarkeppnina 2-1 og er komið í undanúrslit í FRIS. Þar mætir liðið Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi (FVA) og vinni FG þá, er skólinn kominn í úrslit. Þessi keppni fer fram eftir þrjár vikur. Áfram FG!
Lesa meira

FG mætir MÁ í rafíþróttum á morgun - í beinni

Það tekur eitt við af öðru. Á morgun keppir FG gegn MÁ (Menntaskólinn Ásbrú, Suðurnesjum) í rafsporti, í því sem kallast; ,,Framhaldsskólaleikarnir í rafíþróttum.“ Keppnin verður í beinni á Stöð2Esports og og byrjar útsendingin kl.19:30. Þá kemur einnig kvikmyndatökulið í heimsókn á morgun og mun taka viðtöl við keppendur, skjóta svipmyndir frá skólanum og fleira slíkt. Um er að ræða útsláttarkeppni og verður keppt í þremur mismunandi tölvuleikjum, meðal annars hinum geysivinsæla Counter-Strike. Vinni FG tvo leiki af þremur fer liðið í undanúrslit. Áfram FG!
Lesa meira

Sextán brautskráðir frá FG

Sextán nemendur brautskráðust frá Fjölbrautaskólanum í Garðabæ, við hátíðlega athöfn föstudaginn 3. mars síðastliðinn, í Urðarbrunni. Að loknu tónlistaratriði úr væntanlegum söngleik, Heathers, sem Guðrún Erla Guðmundsdóttir flutti, var komið að brautskráningu. Söngleikurinn verður frumsýndur hjá Verðandi, leikfélagi FG, um miðjan mars. Þar var það Kristín Helga Hákonardóttir af Náttúrufræðabraut, sem stóð upp úr og varð dúx með 9,4 í meðaleinkunn. Fékk hún fjölda annarra verðlauna (sjá mynd), en fleiri nemendur hlutu líka verðlaun og viðurkenningar. Ávarp nýstúdents flutti síðan Melkorka Harðardóttir og að því loknu var sungið Íslands minni og stúdentum svo sleppt út í góða veðrið.
Lesa meira

Forkeppni Söngkeppni framhaldsskólanna

Á morgun, fimmtudaginn 2.mars fer fram forkeppni í FG vegna Söngvakeppni framhaldskólanna. Keppni sem þessi getur reynst stökkpallur út í frekari feril á sviði tónlistar. Fjöldi keppenda verður á svæðinu til að hefja upp raust sína, og auðvitað fer keppnin í FG fram í Urðarbrunni. Sá sem vinnur verður fulltrúi FG í Söngvakeppni framhaldskólanna en lokakeppnin fer fram í Kaplakrika þann fyrsta apríl og þá verður væntanlega mikið húllumhæ.
Lesa meira

Styttist í Heathers

Það styttist óðfluga í frumsýningu á söngleiknum Heathers, sem Verðandi, leikfélag FG er að setja upp þessa dagana. Allt er á fullu og öllu er tjaldað til. Æfingar ganga vel og er mikil spenna i hópnum. Við erum líka spennt að sjá stykkið, enda leiksýningar Verðandi gjarnan einn helsti hápunktur félagslífsins í skólanum á hverju ári. Fjölmargir taka þátt í uppsetningunni og hleypur kostnaðurinn á milljónum. Hér eru nokkrar myndir frá fésbókarsíðu Verðandi, sem öllum er frjálst að skoða.
Lesa meira

Naglbítur: FG mætir MR í undanúrslitum Gettu betur

Nú er það ljóst hvaða lið mætast í undanúrslitum spurningakeppni framhaldsskólanna, Gettu betur. FG fær verðugan andstæðing til að glíma við, en það er MR, margfaldur meistari í Gettu betur. FG er líka meistari í Gettu betur, vann keppnina árið 2018 og varð í öðru sæti í fyrra. Allt getur því gerst Hin tvö liðin í undanúrslitum eru Verkmenntaskóli Austurlands og Fjölbrautaskóli Suðurnesja. FG mætir MR næsta laugardag, 4.mars á RÚV og hinir tveir skólarnir mætast svo viku seinna. Vonandi verður þetta ,,naglbítur“. Áfram FG...og berjast!
Lesa meira

FG-ingurinn Sigga Ózk komst í úrslit Söngvakeppninnar

Sigga Ózk, fyrrum nemandi og stúdent frá FG, er komin í úrslit Söngvakeppninnar. Það var ljóst laugardaginn 25.febrúar þegar Sigga flutti lagið ,,Gleyma þér að dansa“. Óhætt er að segja að Sigga hafi geislað af gleði á sviðinu og það smitaði greinilega út frá sér. Með Siggu fóru Langi Seli og Skuggarnir í úrslit með lagið Ok. Glæsilegt Sigga, við bíðum spennt og til hamingju!
Lesa meira